Lýsing
N’ice Nestisskálar er með kæliplötu sem henta vel til að taka með sér ferskt nesti í skólann, vinnuna eða ferðalagið.
Í skálinni eru 2 hólf: Eitt stórt hólf sem hentar vel fyrir jógúrt, ferska ávexti o.þ.h. og minna hólf í lokinu fyrir meðlæti eins og þurrkaða ávexti, hnetur o.þ.h. Hólfin eru aðskilin til að halda meðlætinu þurru og stökku. CUTElery™ – er hnífur, gaffall og skeið allt í einu stykki sem fylgir með og smellist í stæði ofan á lokinu.
Kæliplata fylgir sem heldur nestinu köldu og fersku í a.m.k. 2 klst. við stofuhita.