Le Feu: Sky
Hjarta heimilisins
289.900kr.
Glæsileiki hönnunarinnar, hreinar línur og lifandi logar gera Le Feu arnanna að frábærri viðbót við umhverfið. Le Feu SKY er mest seldi umhverfisvæni arinninn í Skandinavíu. Sky einkennist af einstakri loftfestingu sem gerir arninn áberandi og glæsilegan. Með sporöskjulaga hvelfingunni er líkt og hann svífi í lausu lofti. Þar sem hann geislar af mjúkri hlýju, sem stuðlar að notalegu og afslappuðu andrúmslofti.
SKY býður upp á einstakt tækifæri til innanhúshönnunar þar arinninn verður sem órjúfanlegur hluti af hönnun rýmissins. Ef þú ert að leita að stílhreinum og grípandi hlut sem tekur ekki gólfpláss, þá er SKY svo sannarlega arinninn fyrir þig.
Magn CO2 sem framleitt er af arninum er lítið, eða sambærilegt við magnið sem kerti gefur frá sér. Lífrænt etanóleldsneyti framleiðir hreinan, reyklausan hita án skaðlegs útblásturs sem myndast frá hefðbundnum jarðefnaeldsneytiseldum og viðarbrennurum. Við mælum með því að ef arninn er notaður í litlum herbergjum og brennarinn er stilltur á hámarksstillingu þá ætti að opna hurð eða glugga til að leyfa loftflæði að sporna gegn loftmengun innandyra. Ekki er mælt með því að láta arininn loga í litlu, óloftræstu herbergi. Ekki er heldur mælt með því að hafa arininn eftirlitslausan þegar enginn er heima eða eftir að farið er að sofa.
Le Feu eldstæðin eru hönnuð til að leyfa sérsmíðuðu hvelfingunni að skila þægilegum umhverfishita.
Eldstæðin framleiða um það bil 2,0 – 3,0kw af hita sem jafngildir litlum gas- eða rafmagns hitara. Það gera 2,0 – 2,5kw afköst af varma hita um það bil 20 fermetra herbergi.
Eldsneytisnotkun fer eftir brennarastillingunni sem notuð er og loftslagsskilyrðum. Á svæðum þar sem loftstraumur er mikill getur tíminn minnkað.
ATH! – Le Feu Sky má aðeins setja í múrsteins- eða steypt loft.
Sérpöntunarvara – Afhending: 0-2 vikur
Description
Le Feu eldstæðin eru í samræmi við evrópska staðla og eru mjög auðveld í uppsetningu, tilbúin til notkunar. Hver tegund kemur með uppsetningarleiðbeiningum. Le Feu eldstæðin krefjast ekki skorsteins.
Innifalið í Le Feu Sky:
1x Le Feu arinn
1x Le Feu SafeBurn brennari
1x Le Feu verkfæri
1x súla
1x loftfesting
1x Notendahandbók
12L Lífetanól eldsneyti
Arinn:
Þyngd: 14,3 kg
Mál: B: 52cm / H: 35cm / D: 49cm
Efni: 2,3mm S235 Stál, háhitaþolin málning
Brennari:
Þyngd: 4,8 kg
Mál: B: 20cm / H: 7,5cm / D: 24cm
Efni: Ryðfrítt stál, burstað, keramik trefjar
Loftfesting:
D: 15cm / H: 2.8cm
Þyngd: 0,8 kg
Efni: Ryðfrítt stál, burstað, keramik trefjar
Súla:
D: 2.5cm
Efni: Ryðfrítt stál, burstað, keramik trefjar
Eldsneyti: 12L Lífetanól (Lágmark 95% hreint)
Eldsneytisnotkun: Allt að 0,3 lítrar á klst.
Hiti frá arni: 3 kW
You may also like…
-
- Eldvarnartæki – Brass
- 18.500kr.
- Add to basket
-
- Eldvarnartæki – Hvítur
- 18.500kr.
- Add to basket