5% netafsláttur
Virkjast sjálfkrafa
Góð Tilboð
Sjá tilboðsvörur hér
Heimsendingar
Pósturinn & Dropp
Greiðslur
Kreditkort / Netgíró / Aur / Pei / Apple Pay / Aukakrónur

Stór diskur: Grár

Handunninn náttúrulegur steinn

9.490kr.

Dökkgrár matardiskur frá Stonemade. Diskurinn er handunninn úr náttúrulegum marmara og gróflega slípaður . Efniviðurinn er sóttur til nágrennis Himalaya fjallanna og er unnin af fagmönnum á svæðinu.

Æðar og smærri ófullkomleiki steinsins er hluti af eðli og sögu efnisins, eins konar fullkomnun ófullkomleikans. Þetta gefur vörunum hrátt yfirbragð og undirstrikar duttlunga í hönnun efniviðarins af náttúrunnar hendi.

Stærð: 25x25x2cm
Þyngd: 1200g

 

Vörumerki: Stonemade

Description

Stonemade var stofnað af hinni austurrísku Katharina Mörz-Heissenberger. Katharina hannar og framleiðir diska og skálar úr marmara og kalksteini. Þar sem Stonemade er unnið úr náttúrulegum efnivið var ákveðið að notast ekki við neins konar efnafræðilegt ferli við framleiðsluna. Vörurnar hafa því aldrei verið glerjaðar, líkt og við þekkjum með leir og postulín, eða efniviðnum lokað á neinn hátt.

Meðhöndlun

  • Stonemade vörurnar þola uppþvottavélar
  • Framleiðendur mæla frekar með handþvotti í heitu vatni þar sem efniviðurinn er misharður og gæti verið viðkvæmur fyrir miklum ágangi uppþvottavéla til lengri tíma.
  • Engin þörf er á sápu eða öðrum  hreinsiefnum.
  • Af og til er gott að bera nokkra dropa af ólífuolíu á vörurnar og leyfa olíunni að síast inn í efniviðinn. Á þann hátt skapast gljái sem ljær vörunum mýkri áferð og tryggir að vörurnar verða fallegri með hverri notkun.
  • Með daglegri notkun vörunnar myndast með tímanum skán á yfirborð hennar og virkar sem varanleg vörn gegn óhreinindum.

 

Hér má finna upplýsingablað um Stonemade á PDF sniði.

You may also like…