Conia ljósakróna / lampaskermur
Fyrir loftljós og/eða lampa
15.990kr.
Stórglæsilega ljósakrónan frá Umage er hönnuð svo að peran sést hvergi, hvernig sem á hana er horft. Lýsingin verður því aldrei of skerandi eða björt í augun, heldur ljómar allt rýmið af óbeinni birtu. Fegurð náttúrunnar er innblásturinn við gerð ljósakrónunnar og keilulaga form hennar varpar ljósi í hvern krók og kima umhverfis hana.
Silvia ljósakrónurnar og lampaskermarnir ganga frábærlega við Conia ljósakrónurnar til þess að skapa stílhreina heildarmynd á rýmið.
Ath Perustæði (falur) fylgir ekki með.
Hægt er að festa ljósakrónuna á loftljós eða á lampa.
Description
Stærð: ø36xh49 cm
Þyngd: 1100g
Perustæði: E26/E27 (standard perustæði)
Pera og perustæði fylgja ekki með.
Krónan kemur ósamsett, en það tekur um 15 mínútur að setja saman ljósakrónuna og það þarf engin verkfæri til.
Leiðbeiningar fylgja.